Print

Söngleikjanámskeið Drauma

Söngleikjanámskeið Drauma Sumarið 2013

Á sumarönn 2013 býður Leikfélagið Draumar upp á Söngleikjanámskeið fyrir 4 aldurshópa.

Á Söngleikjanámskeiðunum er farið í allt sem tengist því að setja upp söngleik. Við skoðum leiklistina, dansinn og sönginn af fullum krafti en skoðum líka allt hitt sem kemur nálægt því að setja upp sýningu svo sem förðun, ljósahönnun, sviðsmynd og margt margt fleira.

Athugið að takmarkaður fjöldi nemenda kemst á hvert námskeið og gildir reglan að fyrstur kemur fyrstur fær.

Námskeiðunum lýkur með lokasýningu nemenda á síðasta degi námskeiða. Lokasýningarnar okkar eru þekktar fyrir að vera veglegar og ekkert er til sparað hvað varðar hljóðkerfi og ljósabúnað til að gera útkomuna sem allra veglegasta.

Námskeiðin eru haldin í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ en þar er frábær aðstaða.

Skráning á námskeiðin er á www.draumar.com


Námskeiðin sem eru í boði eru:

Söngleikjanámskeið:

Börn fædd 2007-2008 - 10.júní - 14.júní. Ein vika.
Val um að vera annað hvort frá 8:30-11:30 eða 12:30-15:30

Börn fædd 2005-2006 - 15.júlí - 26.júlí. Tvær vikur.
Val um að vera annað hvort frá 8:30-11:30 eða 12:30-15:30

Börn fædd 2003-2004 - 18.júní - 28.júní . Tvær vikur. - NÁMSKEIÐ FULL / SKRÁNING LOKUÐ
Val um að vera annað hvort frá 8:30-11:30 eða 12:30-15:30

Börn fædd 2001-2002 - 1.júlí - 12.júlí. Tvær vikur.
Val um að vera annað hvort frá 8:30-11:30 eða 12:30-15:30

AUKANÁMSKEIÐ - Börn fædd 2003-2004 - 1.júlí - 12.júlí. Tvær Vikur. Kennt frá 08:30 - 11:30.

Söngleikjanámskeiðin kosta 15.990.- kr  nema yngsti hópurinn en þar er gjaldið 10.990.- kr. - Veittur er 10% systkinaafsláttur.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni okkar www.draumar.com eða með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Fljótlega eftir skráningu sendum við kröfu í heimabanka foreldris.

Print

Lok haustannar 2010

Þá er haustönninni 2010 lokið og þökkum við stúlkunum sem tóku þátt í fyrsta söngnámskeiðinu okkar kærlega fyrir þátttökuna. Nú erum við farin í jólafrí og lærdómsfrí fram á sumarið en við vonumst til að auglýsa sumarnámskeiðin okkar þegar tekur að vora. 

Gleðileg jól og farsælt komandi ár !

Print

Lokatónleikar á Haustönn 2010

Lokatónleikar á haustönn 2010 verða haldnir í Gryfjunni í Garðaskóla sunnudaginn 12.desember kl. 14:00.

Á tónleikunum flytja nemendur á söngnámskeiði lög sem þær hafa verið að æfa í vetur. 

Kaffi og með því, jólastemning og rólegheit. Vonumst til að sjá sem flesta.

Print

Hvatapeningar

Við hvetjum alla sem eiga eftir að greiða námskeiðsgjöld til að nýta sér hvatapeningana. Hvatapeningar fyrnast um áramót. Hægt er að greiða inn á námskeiðsgjöldin í Mínum Garðabæ, en þeir sem eru þegar búnir að greiða geta fengið kvittun hjá okkur og fengið endurgreiðslu hjá Garðabæ, eigi þeir óráðstafa hvatapeninga.

Frekari upplýsingar um hvatapeninga er að finna hér 
http://www.gardabaer.is/Thjonusta-i-Gardabae/hvatapeningar